Hæææ!
Herrðu Eva með eitt dúndurblogg fyrir
neðan vil endilega biðja fólk um að lesa það en ég neyddist til
þess að blogga þar sem ég hef nákvæmlega ekki neitt að
gera.
Ég ætla að deila þeim gleðifréttum með
ykkur að ég er að fara að losna við gifsið og naglana úr fætinum í
fyrramálið!, vá eru þið ekki að grínast, ég held ég hafi nú bara
aldrei verið eins spennt á ævi minni! Svo kem ég bara labbandi í
skólann á föstudaginn(H) djöfull verður það nett!
(ó mæ
good,)
Saumó verður haldið hjá mér á föstudaginn,
og ætla þær gellurnar allar að gista! f*** stelpur þetta verður svo
magnað, ójá nema að hún Karen missir af honum, hún er að fara að
keppa kellan. En Milla kemur með eitt flott blogg eftir saumó og
setur eflaust eitthverjar myndir inn á síðuna sem við vorum að taka
í gær.
SAUMÓ!;
taka með;dýnu, svefnpoka/sæng, kodda, náttföt, tannbursta,
tannkrem, og teppi ef þið eigið og svo kannski eitthvað
fleira
(sorry
Eva:*)
Ekki hef ég hugmynd afhverju en mig langar
svo að gera svona lista


Okei það sem ég hef gert á meðan ég var í gifsinu;
1. Fór til Bolungarvíkur, kynntist ENNÞÁ meira fólki og brjálað
stuð
2.Missti ég af samfés.! Já ég veit!
3.Hækjurnar mínar fuku í eitt skipti, rann á þeim í 2 skipti(Y)
4.Ég er búin að gera mig oft að fífli fyrir framan HOT gaura á
hækjunum*þið vitið brosa og síðan átta sig á því að þú ert að
hækjum, döö(ekkert svakalega fallegt skom)*
5.Detta í stiganum heima hjá mér aftur á bak með rassinn í
tröppurnar, áts.
mmm já margt fleira..
Allavegna þá er hægri fóturinn búinn,
NÆS!
Herrðu já á meðan ég man þá hafa kannski ekki allir séð mig en ég
er búin að klippa á mig svona þvertopp(H) alltof svöl, en ég vil
endilega fá að vita ykkar skoðun á honum...